Um Fjölver ehf.:

Efnarannsóknarstofan Fjölver ehf. var stofnuð árið 1962 af Jóhanni Jakobssyni efnaverkfræðingi og hefur frá upphafi sérhæft sig í sýnatöku, magnmælingum, rannsóknum og gæðaeftirliti á olíuvörum; eldsneyti, smurefnum, leysiefnum og asfalti. Stofan tók til starfa að Garðastræti 45 þann 1. febrúar 1962 en flutti árið 1979 í rúmgóða rannsóknaaðstöðu að Hólmaslóð 8 í Örfirisey þar sem hún er enn til húsa.

Um 50 staðlaðar mælingar eru framkvæmdar að staðaldri á stofunni samkvæmt alþjóðlegum stöðlum á borð við staðla ASTM International. Flestar mælingarnar eru á eðlisefnafræðilegum eiginleikum.

Stofan tekur einnig að sér önnur tilfallandi verkefni á sviði efnafræði, sýnatöku, magnmælinga og gæðaeftirlits.

Á stofunni starfa að jafnaði tveir efnafræðingar og vélfræðingur auk þess sem fyrirtækið hefur mælingamenn á Norður- og Austurlandi í tímabundnum verkefnum.

Forsíða