
Mælingar á smurefnum:
Smurolía, vökvakerfisolía, gírolía, spennaolía o. fl.
Basatala, Total Base
Number.
Olíur innihalda basísk bætiefni. Ákvarða
má magn þessara efna með títrun við sýru. Sýni er leyst í
blöndu af klóróbenseni og ísediki og spennutítrað að
jafngildispunkti með perklórsýru í ísediki. 10 ml. 36t. IP
276.
Bensínleifar í
smurolíum.
Vatni er blandað við smurolíuna og
bensínið er eimað úr henni ásamt vatninu. Bensínið sest
ofan á vatnið í safnara með rúmmálskvarða. 200ml. 36t.
ASTM D322.
Blossamark í opnum
bolla, COC.
Olíu er komið fyrir í opnum bolla og
hituð. Með ákveðnu hitabili er lítill logi færður yfir
sýnið eða þar til kviknar í lofttegundunum sem stíga frá
því. 100 ml. 36t. ASTM D92.
Botnfall í skilvindu.
Olíusýni eru þynnt til helminga í tolúen og þeytt í
skilvindu svo vatn og föst óhreinindi setjast á botn
mæliglassins. 100 ml. ASTM D96.
Eðlisþyngd, með
rafeindamæli (digital hydrometer).
Tiftíðni
glerhylkis með vökvasýni er mælt við ákveðið hitastig og
eðlisþyngd reiknuð út frá henni. 100ml. 36t. ASTM D4052.
Föst efni óleysanleg
í heptan:. Sýni er leyst upp í n-heptan og metanól
lausn og botnfall í skilvindu vegið. 10 ml. 36t. IP 316.
Frostlögur, glýkól,
í olíum.
Ef glýkól er til staðar er það oxað
yfir í formaldehýð og það mælt með litamælingu. 50 ml.
36t. K-4815 CHEMets eða NELCO GLY-TEC TEST (Sambærilegt við
ASTM D 2982).
Klóríðpróf á vatni
úr olíu.
Vatnssýni, sem hefur verið skilið frá olíu,
er títrað með silfurnítrat lausn (AgNO3(sol.)) af þekktum
styrk. Í vatnið hefur áður verið bætt kaliumkrómati
þannig að rautt silfurkrómat tekur að falla út þegar allar
klórið jónir eru fallnar út sem silfurklóríð. Mohr
aðferð.
Klóríðpróf á vatni
úr olíu eftir útdrátt. Sýni er leyst í xylen,
alkóhóli og asetoni og hitað undir þéttingu. Vatni er bætt
í og vatnsfasinn svo dreginn út og síaður eftir hitun. Allar
klóríð jónir eru felldar út sem silfurklóríð með
yfirmagni af AgNO3 og yfirmagn silfur jóna svo baktítrað með
thíócýaníði, Volhard títrun. 50 ml. 36t. SMS125-5.
Litur, Lovibond.
Litur ýmissa olíuafurða, svo sem smurolíu, gasolíu og vax,
er ákvarðaður með samanburði við staðalliti undir
venjulegu ljósi. 100 ml. 36t. ASTM D1500/IP 196.
Olía í vatni.
Vatnið soðið burt, olían leyst upp í eter og síuð í vigtaða
flösku. Eterinn soðinn burt og flaskan vegin á ný. 2000 ml.
36t.
PCB próf.
Olían er látin hvarfast við natríum málm svo lífrænt
bundnir halógenar verði natríum halíð og þannig eru þeir
dregnir yfir í vatnsfasa og títraðir með kvikasilfursnítrati
með diphenylcarbazone sem litavísi. ASTM D5384.
Rennslismark, Pour
Point.
Eftir hitun er olíusýni kælt með ákveðnum
hætti og athugað á 3°C fresti hvort olían rennur. Síðasta
skipti sem hún rennur er rennslismark. 100 ml. 36t. ASTM D97.
Seigja, kinematísk.
Ákveðið magn vökva er látið renna undan þyngdarkrafti um
pípu við þekktan hita og tíminn mældur sem það tekur
vökvann að renna milli kvarða á pípunni. Umreikna má
kinematísku seigjuna yfir í dynamíska. 100 ml. 36t. ASTM D445
og D446.
Stigeiming.
100 ml sýni er eimað við ákveðin skilyrði sem hæfa
eðliseiginleikum. Kerfisbundin skráning á hita og rúmmáli á
þéttum vökva fer fram. 100 ml. 36t. ASTM D86.
Sýrustig, pH, olía.
Um 2 g af olíunni eru leyst upp í lausn sem er 50,0% tolúen,
49,5% iso-própanól og 0,5% vatn og sýrustig mælt með
rafspennumælingu. 10 ml. 36t.
Sýrutala, Total acid
number.
Olíusýni er leyst upp í 50% tólúen, 49,5%
isoprópanól og 0,5% vatnslausn og títrað í með staðlaðri
KOH lausn með p-naftolbensen sem litavísi. 50ml. 36t. ASTM
D974.
Vatnsinnihald,
Dean-Stark eiming.
Á bilinu 0,01-100%
rúmmálshlutfall. Vatn er eimað úr þekktu magni af sýni í
leysi sem blandast ekki vatni. Vatnið þéttist í mæliglas.
100 ml. 36t. ASTM D95.
Vatnsinnihald, Karl-Fisher spennutítrun. Á bilinu 50 til 1000 mg vatns í kg af olíu. Sýni spennutítrað með Karl-Fisher hvarfefni að endapunkti. 100 ml. 36t. ASTM D4377 (D 1744).